Ice White Toning Mask

Description

Bleach Blondes Ice White Toning Treatment er blá tóner djúpnæring sem fjarlægir gula- og kopartóna ásamt því að endurnæra viðkvæmt og brothætt ljóst hár Inniheldur bláar litaagnir sem birta upp og kæla litatón hársins. Næringin myndar varnarlag utan um hvert hár sem ver náttúrulegt Keratín þess og minnkar skemmdir sem hljótast af aflitun, UV-geislum og hita.

Notkun:

  • Eftir hárþvott með sjampói skaltu bera næringuna jafnt í allt hárið. Fyrir bestan árangur skaltu greiða næringuna í gegnum hárið á meðan þú ert í sturtunni.
  • Láttu næringuna bíða í hárinu í eina til fimm mínútur, allt eftir því hversu sterk áhrif þú vilt. Fyrir extra gráan tón getur þú lengt tímann í allt að 10 mínútur.
  • Skolaðu hárið vandlega.
  • Notaðu vikulega til þess að viðhalda köldum litatón.
  • Ef þú vilt fá þetta ofur-grá tónaða lúkk skaltu nota þessa djúpnæringu með Bleach Blondes Ice White sjampóinu okkar.
  • Ef þér finnst hárið vera of-tónað er ágætt að þvo hárið með Everyday Blondes sjampóinu okkar einu sinni og þá ætti tónninn að mildast aðeins.

Hentar:

  • Náttúrulega ljósu og lituðu hári
  • Þeim sem vilja losna við gula- og kopartóna úr ljósu hári og gefa því gráleitan tón
  • Þeim sem vilja viðhalda litnum í ljósa hárinu sínu

Ávinningur:

  • Fjarlægir kopar- og gula tóna úr ljósu hári
  • Veitir vörn gegn UV geislum

Fæst í 200 ml