Pepped Up Varasalvi

Categories: ,

Description

Pepped Up er umhverfisvænn varasalvi sem inniheldur kælandi piparmyntu og fjölda annarra efna sem næra og mýkja varirnar þínar. Næstum 200 milljón plastumbúðum utan af varasölvum er hent á hverju ári og meirihluti þeirra umbúða endar ekki í endurvinnslu! Þessi varasalvi gerir ekki bara gott fyrir varirnar þínar, heldur líka fólk og jörðina.

Gott fyrir varirnar – Pepped Up er kælandi piparmyntusalvi sem inniheldur kakósmjör og jójóbaolíu til að gera varirnar mjúkar og djúsí. Hann inniheldur einnig laxer- og morgunfrúarolíu sem eru pakkaðar af E-vítamíni og fitusýrum sem binda rakann enn frekar.

Gott fyrir jörðina – salvinn kemur í 100% plastlausum umbúðum sem má setja í moltugerð.

Gott fyrir fólk – hjá Ethique er lagt mikið kapp á að afla innihaldsefna sem framleidd eru með sjáflbærum hætti frá stöðum eins og Rwanda og Samoa. Með því að versla beint við framleiðendur/bændur er hægt að auka gagnsæi sem tryggir öruggari innkomu fyrir þau og betri vinnuskilyrði.

Vegan, Cruelty free og án pálmolíu.