Sugarplum – Litaður varasalvi

Categories: ,

Description

Sugarplum er umhverfisvænn varasalvi sem einnig er litaður og stútfullur af nærandi innihaldsefnum fyrir fallegar varir. Næstum 200 milljón plastumbúðum utan af varasölvum er hent á hverju ári og meirihluti þeirra umbúða endar ekki í endurvinnslu! Þessi varasalvi gerir ekki bara gott fyrir varirnar þínar, heldur líka fólk og jörðina.

Gott fyrir varirnar – Sugarplum er litaður varasalvi sem inniheldur oggulítið af piparmyntu ásamt fullt af kakósmjöri, laxer-, jójóba- og morgunfrúarolíu. Þessi ofurblanda mýkir og gefur vörunum þinum einstaklega mikinn raka svo þær haldast djúsí lengur. Sugarplum er svo góður að þú munt aldrei gleyma hvar þú skildir hann eftir.

Gott fyrir jörðina – salvinn kemur í 100% plastlausum umbúðum sem má setja í moltugerð.

Gott fyrir fólk – hjá Ethique er lagt mikið kapp á að afla innihaldsefna sem framleidd eru með sjáflbærum hætti frá stöðum eins og Rwanda og Samoa. Með því að versla beint við framleiðendur/bændur er hægt að auka gagnsæi sem tryggir öruggari innkomu fyrir þau og betri vinnuskilyrði.

Vegan, Cruelty Free og án pálmolíu.