Purple Toning Conditioner

Description

Bleach Blondes Toning Conditioner er öflug djúpfjólublá tóner-næring sem birtir og frískar upp á ljóst hár með því að vinna gegn kopar- og gulum tónum.

Næringuna er hægt að nota með hvaða sjampói sem er til þess að viðhalda eða fríska upp á ljósa lokka á mildan hátt. Ef þú ert með mjög kopartóna og hlýjan tón sem þú vilt kæla niður eða vilt fá þetta ofur-kalda tónaða lúkk skaltu nota þessa næringu með Bleach Blondes sjampóinu okkar.

Notkun:

  • Eftir hárþvott með sjampói skaltu bera næringuna jafnt í allt hárið. Fyrir bestan árangur skaltu greiða næringuna í gegnum hárið á meðan þú ert í sturtunni
  • Láttu næringuna bíða í hárinu í eina mínútu, skolaðu hárið vandlega og skolaðu það síðan aftur
  • Notaðu vikulega til þess að viðhalda köldum litatón
  • Ef þér finnst hárið vera of-tónað er ágætt að þvo hárið með Everyday Blondes sjampóinu okkar einu sinni og þá ætti tónninn að mildast aðeins

Hentar:

  • Náttúrulega ljósu og lituðu hári
  • Þeim sem vilja losna við gula- og kopartóna úr ljósu hári
  • Þeim sem vilja viðhalda tóninum í ljósu hári

Ávinningur:

  • Fjarlægir kopar- og gula tóna úr ljósu hári

Fæst í 250ml túpu