Curl Restoring Intensive Mask

Categories: ,

Description

Öflugur CGM vottaður djúpnæringarmaski sem leitar uppi og lagar skemmdir í hári.

Öflugur djúpnæringarmaski sem leitar uppi og lagar skemmdir í hári, auk þess að gefa raka til þess að lífga upp á þreyttar krullur. Próteinríki maskinn okkar dregur úr slitnum endum fyrir sterkari krullur sem eru fullar af lífi. Maskinn er hannaður fyrir allar krullur á bilinu 3A til 4C og inniheldur eingöngu CGM vottuð hráefni. Næringin inniheldur kókoshnetu, cupuaçu og sheasmjör til þess að gefa raka, næra og styrkja krullurnar. Hárið verður í betra standi, mýkra og viðráðanlegra. Fagnaðu og virtu mátt krullanna þinna með Imbue. Þetta snýst nefninlega ekki um að stjórna krullunum, heldur um að endurlífga þær.

Notkunarleiðbeiningar

Dreifðu jafnt í gegnum hreint & rakt hár. Notaðu vel af maskanum, skiptu hárinu í hluta og renndu fingrum eða greiðu í gegn til þess að tryggja að hver og ein krulla fái sinn skammt. Láttu bíða í 5-10 mínútur og skolaðu vel úr. Notaðu svo næringu eins og venjulega til þess að innsigla rakann í hárinu.