Curls Mask For Curls & Coils

Description

Próteinríkur, öflugur djúpnæringarmaski sem er sérstaklega ætlaður fyrir krullur á bilinu 3A til 4C til þess að lagfæra og styrkja hárið innan frá.  

Öflug rakagefandi meðferð fyrir krullað hár til þess að lagfæra og styrkja auk þess að draga úr klofnum endum. Málamiðlunarlaus hárumhirða fyrir krullur. 100% Curly Girl samþykkt, vegan og snýst um raka. 

  • Mjög rakagefandi 
  • Sléttir og styrkir 
  • Róar úfið hár/“frizz“ 
  • Mótar og ýtir undir 

Inniheldur Shea smjör, öflug prótín, pro-vitamin B5 og  lífræna kókosolíu til þess að næra og róa krullurnar þínar.  

Við vitum að krullað hár getur verið þurrara og viðkvæmara en aðrar hártýpur, þess vegna er raki aðalatriðið í For The Love Of Curls línunni. Þú finnur aldrei olíubyggð sílíkon, súlföt (SLS & SLES), þurrkandi alkóhól, steinefnaolíur eða steinefnavax í formúlunum okkar. Rakagefandi krullumaskinn okkar er blandaður úr náttúrulegu, sjálfbæru, nærandi og styrkjandi innihaldi sem krullurnar þínar eiga eftir að elska. 

Mjög rakagefandi hármaski sem leitar uppi og lagar þurrar og skemmdar krullur þannig að þær verði sterkari og mýkri. Maskinn dregur úr klofnum endum og gerir hárið viðráðanlegra.    

Notkun  

  • Settu vel af djúpnæringunni í rakt hár eftir þvott
  • Hafðu næringuna í hárinu í 5-10 mínútur og skolaðu vel úr
  • Notaðu næringu eftir á til þess að loka hárinu

Ráð frá Lee: „Til þess að vera viss um að djúpnæringin smjúgi vel inn hárið, þá er best að þurrka það með handklæði eftir þvott áður en þú setur djúpnæringuna í. Maskinn getur þá gefið þér nauðsynlega næringu til þess að halda hárinu heilbrigðu og gefa því aukinn gljáa. Ef þú hefur ekki nægan tíma þá getur þú kreist vatnið úr hárinu og skellt maskanum í.“