Curls Leave-in Moisture Mist

Description

Gefðu krullunum raka, greiddu úr flækjum og mótaðu þær. 

Fjölvirkt næringarsprey sem mótar krullurnar og gefur þeim raka. Sérstaklega þróað fyrir liði og krullur frá 2A til 4C. Málamiðlunarlaus hárumhirða fyrir krullur. 100% Curly Girl samþykkt, vegan og snýst um raka. 

  • Nærandi 
  • Rakagefandi 
  • Mýkjandi 
  • Hemur úfið hár „frizz“ 

Inniheldur Shea smjör, Camelliu og lífræna kókosolíu til þess að gefa krullunum þínum meiri raka, greiða úr flækjum og temja úfna lokka fyrir mýkri og mótaðri krullur. Við hjá Lee Stafford elskum fjölvirkar vörur, þannig að við þróuðum þetta sprey til þess að gefa bæði blautum og þurrum krullum raka. Notist í blautt hár til þess að næra og greiða úr flækjum, og í þurrt hár til þess að fríska upp á annars og þriðja dags krullur. Rakagefandi næringarsprey sem gerir krullurnar þínar mjúkar og þyngdarlausar. 

Við vitum að krullað hár getur verið þurrara og viðkvæmara en aðrar hártýpur, þess vegna er raki aðalatriðið í For The Love Of Curls línunni. Þú finnur aldrei olíubyggð sílíkon, súlföt (SLS & SLES), þurrkandi alkóhól, steinefnaolíur eða steinefnavax í formúlunum okkar. Næringarspreyið okkar fyrir liði og krullir er blandað úr náttúrulegu, sjálfbæru, nærandi og styrkjandi innihaldi sem krullurnar þínar eiga eftir að elska. 

Krulluelskandi rakaúði sem greiðir úr flóka og gerir hárið viðráðanlegra. Þessi rakainnspýting sléttir úr úfnu hári og ýtir undir náttúrulega krullumynstrið þitt.  

Notkun  

  • Spreyjaðu í blautt hár og greiddu í gegn
  • Eyddu nokkrum mínútum í að gera krullurnar þínar stórkostlegar á meðan þær eru blautar
  • Þeim mun betur sem þær líta út blautar, þeim mun betur líta þær út þurrar 

Ráð frá Lee: „Spreyjaðu yfir annars dags krullur til þess að fríska upp á þær og endurmóta.“