Augn- og augabrúnaserum

Categories: ,

Description

Öflugt og næringarríkt augnháraserum sem einnig er ætlað til notkunar sem augabrúnaserum – sannkallað 2 í 1 serum.

Augabrúna- og augnháraserumið okkar inniheldur virk efni sem þykkja, þétta og lengja hárin. Serumið má nota á hverjum degi því blandan inniheldur engin hormón, ólíkt mörgum öðrum sambærilegum vökvum.

NOTKUN:
Við mælum með að nota serumið á kvöldin þegar húð þín er orðin hrein og farðalaus. Nuddaðu burstanum í rót augnaháranna og burstaðu síðan yfir augabrúnirnar og láttu þorna í um það bil 90 sek. áður en þú ferð að sofa. Ef þú ert ekki með farða á daginn geturðu sett serumið á á morgnana líka til að fá auka boost. Serumið ætti sjálfkrafa að hjálpa til við að temja augnbrúnir og húða augnhárin með fallegri gljáandi áferð, sem gerir það að verkum að þau líta út fyrir að vera betur nærð og aðeins þykkari strax.