Sleep Calming Massage Lotion – Nuddkrem

Categories: ,

Description

Róandi nuddkrem sem hjálpar þér að skapa góða háttatímarútínu með barninu þínu. Sleep nuddkremið er annað skrefið í þriggja þrepa háttatímarútínu Childs Farm.

Þetta milda lavender nuddkrem er annað skrefið í háttatímarútínu Childs Farm með Sleep línunni. Nuddkremið inniheldur ilmblöndu sem þróuð var af Childs Farm í samstarfi við svefnsérfræðinga í Bretlandi. Ilmblandan hefur róandi áhrif á hugann og hjálpar barninu að tengja ilminn við háttatíma. Sleep nuddkremið inniheldur húðelskandi efni eins og Shea smjör og næringarríkar olíur sem gefa húðinni mikinn raka. Kremið er bæði hægt að nota sem áburð en einnig til að nudda uppúr fyrir svefninn. Sleep línan hentar börnum og ungbörnum eldri en 6 mánaða.