Nanogen Hair Thickening Fibres

Categories: ,

Description

Einn staukur af Nanogen hártrefjum inniheldur mánaðarskammt af fíngerðum, 100% keratín hártrefjum sem bindast þínu eigin hári og gera það samstundis þykkara á náttúrulegan hátt.

Einkaleyfisvarða Kinetic TM málmröndin tryggir að Nanogen hárfíbrarnir hafa yfir 400% meiri rafstöðueiginleika en hjá leiðandi keppninautum. Trefjarnar virka mjög vel á svæði þar sem hár er farið að þynnast og/eða skallablettir hafa myndast.

Trefjunum er stráð í hárið og þar bindast þær við þitt eigið hár og láta það líta út fyrir að vera þykkara. Trefjarnar fást í 7 mismunandi litbrigðum sem má að auki blanda saman til þess að ná fram sama litatón og þitt hár hefur. Innihalda ekki paraben og henta vel fyrir viðkvæman hársvörð.

Notkun:

Stráðu Nanogen hártrefjunum í þurrt hárið þar sem hárþynningin er, byrjaðu smátt og byggðu frekar upp
Blandaðu saman litum ef þarf til þess að ná rétta litatóninum fyrir þitt hár
Strjúktu mjúklega yfir hárið til þess að trefjarnar setjist betur í hárið
Ef þú vilt tryggja að trefjarnar haldist gegn um veður og vind skaltu úða yfir hárið með Nanogen Fibre Locking Spray
Hentar:

Nanogen hártrefjarnar henta öllum sem glíma við hárþynningu og/eða skallabletti
Ávinningur:

Hylur hárþynningu og lætur hárið virka þykkara
100% Keratín trefjar sem stífla ekki hársekkina