Weightless Wonder Creme

Categories: ,

Description

Weightless Wonder Creme er einstaklega létt hárkrem sem sléttir, nærir og mýkir fíngert hár auk þess að virka sem eins konar varnarlag gegn raka í andrúmsloftinu. Hárið þitt ætti því ekki að bregðast við rigningunni eins og vanalega. Vegna þess hve létt blandan er er auðvelt að bera hana jafnt í allt hárið sem minnkar jafnframt líkur á að varan safnist upp og þyngi hárið. Kremið má bera í bæði blautt og þurrt hár. Kipptu brúsanum með þér í veskið eða hafðu hann við hendina í vinnunni til þess að lagfæra óþekka lokka í dagsins önn.

Notkun:

  • Fyrir bestan árangur skaltu þvo hárið með Weightless Wonder sjampó og bera Weightless Wonder næringu í það áður en þú notar kremið
  • Berðu kremið í blautt eða þurrt hár
  • Settu eina pumpu af kremi í lófann og nuddaðu milli handanna. Berði kremið jafnt í allt hárið en forðastu rótina
  • Bættu meira magni af kremi við eftir þörfum

Hentar:

  • Fíngerðu Frizzy hári sem bregst óæskilega við raka í andrúmsloftinu

Ávinningur:

  • Setur punktinn yfir i-ið og passar að hárið taki ekki í sig raka úr andrúmsloftinu
  • Róar, sléttir og temur úfna fíngerða lokka
  • Hjálpar þér að passa upp á greiðsluna þó þú sért föst í rigningunni, í ræktinni eða á sunlaugarbakkanum

 

Fæst í 100ml pumpu brúsa