Mintasy Shampoo

Categories: ,

Description

Mintasy er sjampókubbur sem hentar fyrir venjulegt og þurrt hár og hár sem þarfnast viðgerðar. Mintasy inniheldur lífræna kókosolíu, kakósmjör og hreinsandi piparmyntu. Sjampóið hreinsar á mildan hátt og mýkir hárið án þess að þyngja það.

Ethique sjampókubbar innihalda ekki sápu og henta þess vegna öllu hári, líka lituðu.

Pro tip: Það er alltaf mælt með því að þvo hárið tvisvar með sjampói í hverjum þvotti til þess að hreinsa bæði hárið og hárvörðinn og ná burt öllum hármótunarefnum.

Þessi magnaði kubbur jafnast á við 3 x 350 ml brúsa af hefðbundnu sjampói.

Til þess að kubburinn endist sem best skaltu geyma hann í íláti þar sem hann helst þurr, við mælum með Ethique geymsluboxunum sem passa nákvæmlega utan um einn sjampókubb og einn næringarkubb.

  • Cruelty Free
  • Vegan
  • Án Pálmolíu

Notkun:

  • Bleittu hárið vel og renndu síðan Mintasy sjampókubbnum nokkrum sinnum yfir hárið, frá rót til enda
  • Leggðu frá þér kubbinn og nuddaðu hárið vel þar til freyðir
  • Skolaðu hárið vandlega og endurtaktu
  • Fyrir bestan árangur skaltu bera uppáhalds Ethique næringuna þína í hárið

Hentar:

  • Öllum gerðum hárs, en sérstaklega venjulegu og þurru hári
  • Bæði lituðu og ólituðu hári

Ávinningur:

  • Hreinsar hárið á mildan hátt
  • 100% Sápulaus og hefur því ekki áhrif á PH-gildi hársins

Fæst sem 110g kubbur