Baby Foot Exfoliation Foot Peel

Categories: ,

Description

Baby Foot Foot Peel er djúpvirkur skrúbbur sem losar þig við dauðar húðfrumur á einfaldan og árangursríkan hátt.

Pakkinn innheldur sokka sem þú klæðir þig í eftir að hafa þvegið fæturna. Þú ert í sokkunum í klukkustund og þværð þér svo aftur með sápu og vatni. Eftir 2-7 daga byrja dauðu húðfrumurnar að flagna af á náttúrulegan hátt og fæturnir á þér verða mjúkir eins og á litlu barni.

Baby Foot fótameðferðin hefur verið þróuð þannig að blandan ræðst á dauðar húðfrumur sem valda okkur óþægindum. Þökk sé 17 náttúrulegum kjörnum fjarlægir Foot Peel ekki bara dauðar húðfrumur, heldur nærir fæturnar og veitir þeim fallegri áferð.

Helstu innihaldsefni Foot Peel er ávaxtasýra (mjólkursýra, Glycolic sýra, eplasýra og sítrónusýra sem eru fengnar út ávöxtum).

Ítarlegar notkunarleiðbeiningar:

  • Gott er að fara í fótabað áður en meðferð er hafin til þess að mýkja húðina og gera þannig gelinu kleyft að smjúga betur inn í húðina.
  • Opnaðu plastsokkana með því að klippa eftir línunni.
  • Farðu í sokkana og límdu þá aftur með líminu sem fylgir pakkningunni.
  • Efnin virkjast betur í hita þannig að hlýtt sokkapar yfir plastsokkana er alveg málið.
  • Slakaðu á í klukkustund í sokkunum.
  • Þvoðu gelið vel af fótunum eftir meðferð.

Önnur atriði:

Fæturnir byrja að flagna ca. 2-7 dögum eftir meðferðina.

Það flýtir fyrir virkni Baby Foot Foot Peel að fara reglulega í fótabað/bað í vikunni eftir meðferð.

Ekki nota nein rakagefandi krem á fæturna á meðferðartímanum (ca. 2 vikur), þar sem það dregur úr virkni gelsins.

Ef þér finnst þú þurfa aðra meðferð til þess að ná restinni af dauða skinninu, bíddu þá í tvær vikur og endurtaktu meðferðina.

Hvenær á ég ekki að nota Baby Foot?

Byrjaðu á að blettaprófa vöruna þar sem húðlagið er þunnt. Ef húðin ertist á óeðlilegan hátt er ekki ráðlagt að nota vöruna.

  • Ef það eru opin sár á fótunum
  • Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti
  • Ert með sykursýki