Sjampó fyrir menn með fíngert hár.
Lift System Shampoo frá J.F MAN er endurnærandi og styrkjandi sjampó sem lífgar upp á hárið með því að hreinsa vel leifar af þyngjandi mótunarvöru, auk þess að gefa hárinu stamari áferð þannig að þú náir að móta það að vild.
Inniheldur Keratin prótín sem gefur hárinu styrk, náttúrulega fyllingu og þykkara útlit.
Notkun:
- Nuddaðu sjampóinu vandlega í blautt hárið þar til freyðir og skolaðu svo úr. Endurtaktu
- Ef þú vilt meiri mýkt í hárið getur þú t.d. notað Luxurious Volume Thickening næringuna eða stolið einhverri vel valdri næringu frá maka þínum.. passaðu bara að hún þyngi ekki hárið of mikið því þá minnkar virkni sjampósins
Hentar:
- Mönnum með þunnt eða fíngert hár sem þarfnast aukinnar lyftingar
Ávinningur:
- Gefur hárinu aukna lyftingu
- Keratín styrkir hárið
Fæst í 250 ml túpu