SEGÐU FYRIRGEFÐU við hárið þitt með þessum litla bleika vinnuþjark, sem er ekki bara leave-in næring heldur einnig hitavörn og glans- og flókasprey! Þetta undrasprey nærir og ver skemmt og ofmeðhöndlað hár fyrir frekari skemmdum og er fullkominn ferðafélagi, ávallt til staðar þegar hárið þarf smá djús.
Notkun:
- Hristu vel fyrir notkun
- Spreyjaðu vel yfir handklæðaþurrt hár og greiddu í gegn
- Leyfðu hárinu að þorna eða blástu það
- Bestur árangur næst ef notað er eftir hvern þvott
Hentar:
- Hári sem er skemmt, brothætt og líflaust
- Hári með klofna enda
- Þurru og efnameðhöndluðu hári
- Hári sem þarf að þola hitamótunartæki og aflitanir